Saxófónn
- Hljóðfæranám
- Frá 10 ára
- 45 mín
- Einn á einn

Um námsgreinina
Þó saxófónn tilheyri tréblásturshljóðfærum er það búið til úr málmi.Saxófónninn var fundinn upp og fyrst smíðaður af belganum Adolphe Sax um 1840 svo miðað við önnur hljóðfæri þá er hann ungt hljóðfæri eða aðeins um 150 ára gamall.
- Byrjað frá
- 10 ára
- Á viku
- 1 tími
- Lengd tíma
- 45 mín
- Kennsluform
- Einn á einn
Hljómur hans er mjúkur og fallegur en getur líka verið sterkur og spennandi. Saxófónn er mest notaður í jazz- og popp tónlist og er frægur fyrir t.d. lagið Carless Whisper , en hann er líka notaður í klassískri tónlist. Til eru margar stærðir af saxófónum, frá litlum sópran saxófónum til risastórra baritón saxófóna. Sá algengasti er alt saxófónninn og hægt er að hefja nám á hann um níu til ellefu ára aldur, jafnvel aðeins yngri, allt eftir þroska nemandans. Oft lærir nemandi á annað blásturshljóðfæri á undan t.d. blokklautu en það er þó ekki nauðsynlegt. Skólinn leigir nemendum sem þess óska saxófón.
Kennari
Allt starfsfólk skólans
Finn A. Schofield
Kennari
Prófaðu að spila
Veldu lag og fylgdu ljósinu, eða spilaðu frjálst á nóturnar.
Smelltu á nóturnar, eða notaðu stafina A til Æ á lyklaborðinu.
Sæktu um nám
Umsóknir fara fram á tonviska.is. Skrifstofan svarar spurningum í síma 562 8477.