Miðstöðin

  • Hljóðfæranám
  • Frá 10 ára
  • 60 mín
  • Hópur
Miðstöðin

Um námsgreinina

Miðstöðin er sameiginleg rytmadeild Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Nýja tónlistarskólans.Þau hljóðfæri sem kennt er á í rytmadeildinni eru píanó, rafgítar og rafbassi.

Byrjað frá
10 ára
Á viku
1 tími
Lengd tíma
60 mín
Kennsluform
Hópur

Deildinni er ætlað að koma til móts við áhugasvið þeirra nemenda sem vilja stunda tónlistarnám af kappi en hafa meiri áhuga á námi í popptónlist en hefðbundnu klassísku tónlistarnámi. Yfirkennari deildarinnar er Ólafur Elíasson píanóleikari. Kennt er eftir rytmískri aðalnámskrá tónlistarskólanna og er mikil áhersla lögð á samspil í deildinni. Allir nemendur Miðstöðvarinnar fá bæði einkatíma og samspilstíma, en nemendur eru einnig hvattir til að mæta sem gestir í einkatíma félaga sinna í þeim samspilsverkefnum sem þeir eru í. Miðstöðin er ætluð nemendum 10 ára og eldri. Umsækjendur sem hafa tónlistarnám að baki, á hvaða hljóðfæri sem er, ganga fyrir.

  • Ólafur Elíasson

    Kennari

Prófaðu að spila

Veldu lag og fylgdu ljósinu, eða spilaðu frjálst á nóturnar.

Smelltu á nóturnar, eða notaðu stafina A til Æ á lyklaborðinu.

Sæktu um nám

Umsóknir fara fram á tonviska.is. Skrifstofan svarar spurningum í síma 562 8477.