Hér er búið að vera mikið fjör í vikunni þar sem um 240 leikskólabörn úr 11 leikskólum borgarinnar hafa komið í heimsókn og æft með hljómsveit Tónmenntaskólans fyrir stóra daginn 21. apríl þegar við tökum þátt í Söngvavori 2026 – Einn fyrir alla, allir fyrir einn“ á Barnamenningarhátíð í Eldborg, Hörpu.
