Jólatónleikar og síðustu kennsludagar

Jólatónleikar skólans verða laugardaginn 13. desember kl. 11 í Bústaðakirkju. Á þeim tónleikum spila ekki allir nemendur skólans en auðvitað eru öll velkomin að koma og hlusta. Húsið opnar fyrir hlustendur kl.10:45. Síðasti kennsludagur forskóla I er mið. 10. des og forskóla II fim. 11 des. Síðustu kennsludagar fyrir jól verða helgaðir allskyns jólasamspilum bæði í skólanum og utan hans. Jólafrí hefst frá og með miðvikudeginum 17. desember. Skólinn hefst svo aftur mánudaginn 5. janúar. Gleðileg jól.

Deila fréttinniSenda í tölvupósti
Allar fréttir