Febrúar 2016

Nú erum við komin nokkuð vel inn í vorönnina.

Þann 6. febrúar voru haldnir Forskólatónleikar þar sem nemendur í Forskóla II fluttu verk sem þau höfðu samið sjálf fyrir foreldra og fjölskyldumeðlimi sem fjölmenntu á tónleikana. Við sama tækifæri spiluðu nemendur sem læra á hljóðfæri í skólanum fyrir forskólanemendur og kynntu öll þau hljóðfæri sem kennt er á í skólanum og auðvelduðu þar með forskólanemendum að velja sér hljóðfæri til að læra á næsta skólaár. þriðjudaginn 16. febrúar tóku 12 nemendur próf í hljóðfæraleik, bæði Grunnpróf og Miðpróf á vegum Prófanefndar og ýmis innanhúspróf (stigspróf). Voru prófin í píanóleik, fiðlu og saxófón. Fimmtudag og föstudag 25. og 26. febrúar er vetrarfrí eins og í grunnskólum borgarinnar. Þá daga fellur öll kennsla niður í skólanum.

Deila fréttinniSenda í tölvupósti
Allar fréttir