Aðalfundur foreldrafélagsins 9. okt kl.18

Það hefur ekki svo lítið verið rætt undanfarið um nauðsyn þess að foreldrar taki virkan þátt í skólalífi barna sinna. Foreldrafélag Tónmenntaskóla Reykjavíkur er einmitt liður í slíkri þátttöku. Allir foreldrar/forráðamenn verða sjálfkrafa félagsmenn í foreldrafélaginu, ekki eru innheimt félagsgjöld og því heldur félagið út starfsemi sinni með fjáröflun eins og peysusölunni sem nú stendur yfir. Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn 9. október kl.18 . Nú vantar fólk í stjórn og því hvetjum við alla foreldra sem vettlingi geta valdið að koma og sína viljann í verki. Hlökkum til að sjá ykkur öll á miðvikudaginn.

Deila fréttinniSenda í tölvupósti
Allar fréttir