Skólabyrjun

Gleðilegt ár!
Nýja árið hefst með látum þar sem covid fárið slær ekkert af. Við gefum heldur ekkert eftir og Tónmenntaskólinn hefst aftur samkvæmt stundaskrá á morgun, miðvikudag 5. janúar.
Grímuskylda er fyrir alla fædda 2006 eða fyrr. Foreldrar eru beðnir um að koma ekki inn í skólahúsin nema með yngstu forskólabörnunum og aðeins ef nauðsyn ber til. 
Brýnum fyrir nemendum að þvo hendur áður en þeir koma inn í tíma og alls ekki koma í skólann ef einhverra kvef einkenna er vart heldur fara þá beint í PCR próf. Vinsamlega tilkynnið öll forföll til skrifstofu skólans.

Vissulega er viðbúið að skólastarf muni eitthvað raskast en kennarar reyna eftir bestu getu að halda kennsluáætlunum og kenna alla þá tíma sem hægt er. Vonandi varir þetta ástand ekki of lengi og hlökkum til að sjá nemendur hér í skólanum.

Fleiri fréttir

Vorhátíð – opið hús

Tónmenntaskólinn verður með opið hús laugardaginn 5. apríl nk. milli kl.13 og 15. Gestir og gangandi eru boðnir velkomnir inn í hið sögufræga hús Tónmenntaskólans „Franska spítalann“ við Lindargötu 51, til að kynna sér starfsemi skólans, en þar stunda rúmlega

Lesa meira

Leikskólaheimsóknir

Þriðjudaginn 11. mars og miðvikudaginn 12. mars stendur mikið til því þá koma hátt í 230 leikskólabörn frá 11 leikskólum í heimsókn hingað á Lindargötuna. Nemendur Tónmenntaskólans verða með hljóðfærakynningar fyrir börnin og svo syngjum við og spilum saman fjögur

Lesa meira

Vetrarfrí 20. – 25. feb

Minnum á að vetrarfrí er í Tónmenntaskólanum frá fim. 20. febrúar til þrið. 25. febrúar (báðir dagar meðtaldir) og því engin kennsla þá daga og skrifstofan lokuð.

Lesa meira

Jólatónleikar og síðustu kennsludagar

Jólatónleikar skólans verða laugardaginn 14. desember kl. 14 í Bústaðakirkju. Á þeim tónleikum spila ekki allir nemendur skólans en auðvitað eru öll velkomin að koma og hlusta. Húsið opnar fyrir hlustendur kl.13:40. Síðustu kennsludaga fyrir jól verða helgaðir allskyns jólasamspilum bæði

Lesa meira

Aðalfundur foreldrafélagsins 9. okt kl.18

Það hefur ekki svo lítið verið rætt undanfarið um nauðsyn þess að foreldrar taki virkan þátt í skólalífi barna sinna. Foreldrafélag Tónmenntaskóla Reykjavíkur er einmitt liður í slíkri þátttöku. Allir foreldrar/forráðamenn verða sjálfkrafa félagsmenn í foreldrafélaginu, ekki eru innheimt félagsgjöld og því heldur

Lesa meira

Add Your Heading Text Here