Skrifstofa Tónmenntaskólans hefur opnað á ný eftir sumarleyfi og er hún opin alla virka daga milli kl. 13-16.
Hljóðfærakennsla og kennsla í fiðlu-, selló- og píanóforskóla hefst frá og með fimmtudeginum 27. ágúst.
Kennsla í tónfræði og almennum forskóla hefst 7. september.
Við treystum því að skólastarf geti verið með eðlilegum hætti þrátt fyrir heimsfaraldur. Minnum börnin á að þvo sér um hendurnar um leið og komið er í hús, hér eru allir snertifletir sótthreinsaðir reglulega en við biðjum foreldra og forráðamenn vinsamlegast um að koma ekki inn í skólahúsið nema brýna nauðsyn beri til.
Hlökkum til að hefja starfið aftur í skólanum.