Tónskáld apríl mánaðar 2025 er rússneska tónskáldið Sergei Rachmaninoff.

Tónskáld Mánaðarins

S. Rachmaninoff var fæddur 1. apríl 1873. Hann var rússneskt tónskáld og líka fanta góður píanóleikari og hljómsveitarstjóri. Rachmaninoff er oft talinn einn besti píanóleikari samtímans. Frá sjónarhóli tónskáldsins má segja að hann hafi verið einn af síðustu leiðtogum rómantískrar klassíkur frá Rússlandi. Píanóið er áberandi í tónsmíðum Rachmaninoffs og hann nýtti hæfni sína sem píanóleikari til hlítar til að kanna tjáningar- og tæknimöguleika hljóðfærisins.

Rachmaninoff fæddist inn í tónlistarfjölskyldu og byrjaði að læra á píanó fjögurra ára gamall. Hann lærði síðar á píanó og tónsmíðar við Tónlistarháskólann í Moskvu þaðan sem hann útskrifaðist árið 1892, en þá hafði hann þegar samið nokkur tónverk. Hann gerðist stjórnandi við Bolshoi leikhúsið frá 1904 – 1906 og settist eftir það að í Dresden í Þýskalandi. Árið 1909 fór hann í sína fyrstu tónleikaferð til Bandaríkjanna sem einleiks píanisti.

Rachmaninoff og fjölskylda hans yfirgáfu Rússland eftir rússnesku byltinguna og settust að í New York árið 1918. Mestur tími hans fór í tónleikaferðalög sem píanisti um Bandaríkin og Evrópu en hann átti líka aðsetur í glæsihúsi í Sviss. Tónsmíðar hans urðu sárafáar fullkláraðar á þessum tíma. Árið 1942 fór heilsu hans hrakandi og fjölskyldan flutti til Beverly Hills í Kaliforníu. Rachmaninoff lést þar úr sortuæxli árið 1943.

Upptökur með honum og tónlist hans er mögnuð og er enn þann dag í dag meðal helstu verka sem eru flutt í öllum tónleikasölum heims. Við mælum með hlustun á helstu tónlistarveitum eða að skella sér á tónleika ef kostur er!

Add Your Heading Text Here