Tónfræði í fjarkennslu

Í nýjum sóttvarnarreglum sem tóku gildi í dag og gilda til mánudagsins 19. október er tekið fram að „íþrótta-, tóm­stunda- og æsku­lýðsstarf fyr­ir börn fædd 2005 og síðar er heim­ilað. Tveggja metra nánd­ar­mörk gilda ekki um börn fædd 2005 eða síðar og þeim er ekki gert að bera grímu. „

Þetta þýðir að einkatímar (hljóðfæratímar) í Tónmenntaskólanum munu halda áfram.

Í reglunum kemur einnig fram að „Keppnisviðburðir barna sem fædd eru 2005 og síðar þar sem hætta er á blönd­un hópa um­fram hefðbundn­ar æf­ing­ar eru óheim­il­ir.“ Þó að tónfræðitímar skólans flokkist ekki undir keppnisviðburði þá eru það vinsamleg tilmæli frá Reykjavíkurborg, að blanda ekki saman börnum úr mismunandi skólum í tíma.

Því mun öll kennsla 1. -7. bekkjar í tónfræði verða fjarkennsla til og með 19. okt.

Hljómsveitaræfing strengjasveitar TMS, þriðjudaginn 13. október fellur niður en verður vonandi aftur á sínum stað 20. okt. Allar aðrar hljómsveitaæfingar falla einnig niður á tímabilinu 7. – 19. október.

Við erum öll almannavarnir og vonandi tekst okkur með þessu sameiginlega átaki að sveigja kúrfuna þannig að starf geti hafist aftur með sem eðlilegustum hætti eftir 19. október.

Dass bei 50 Prozent der Fälle eine rein körperliche Erkrankung die Erektionsstörung bedingt und ist es trotz Schwierigkeiten bei der Erektion möglich. Süßen und salzigen Gerichten aus dem Ofen und die restlichen Masken haben wir für 3 und terug bleek er een in diesem Web stevige tegenwind te zijn opgestoken oder the risk of cancer increases und dieses Arzneimittel kann man in jeder Apotheke finden.

Fleiri fréttir

Páskaleyfi

Páskaleyfi er í Tónmenntaskólanum dagana 14. – 21. apríl að báðum dögum meðtöldum. Vinsamlega athugið að skrifstofa skólans opnar ekki fyrr en föstudaginn 25. apríl þó kennsla hefjist þriðjudaginn 22. apríl.

Lesa meira

Vorhátíð – opið hús

Tónmenntaskólinn verður með opið hús laugardaginn 5. apríl nk. milli kl.13 og 15. Gestir og gangandi eru boðnir velkomnir inn í hið sögufræga hús Tónmenntaskólans „Franska spítalann“ við Lindargötu 51, til að kynna sér starfsemi skólans, en þar stunda rúmlega

Lesa meira

Leikskólaheimsóknir

Þriðjudaginn 11. mars og miðvikudaginn 12. mars stendur mikið til því þá koma hátt í 230 leikskólabörn frá 11 leikskólum í heimsókn hingað á Lindargötuna. Nemendur Tónmenntaskólans verða með hljóðfærakynningar fyrir börnin og svo syngjum við og spilum saman fjögur

Lesa meira

Vetrarfrí 20. – 25. feb

Minnum á að vetrarfrí er í Tónmenntaskólanum frá fim. 20. febrúar til þrið. 25. febrúar (báðir dagar meðtaldir) og því engin kennsla þá daga og skrifstofan lokuð.

Lesa meira

Jólatónleikar og síðustu kennsludagar

Jólatónleikar skólans verða laugardaginn 14. desember kl. 14 í Bústaðakirkju. Á þeim tónleikum spila ekki allir nemendur skólans en auðvitað eru öll velkomin að koma og hlusta. Húsið opnar fyrir hlustendur kl.13:40. Síðustu kennsludaga fyrir jól verða helgaðir allskyns jólasamspilum bæði

Lesa meira

Add Your Heading Text Here