Til hamingju klarinettuleikarar! Alþjóðlegi klarinettu dagurinn er í dag 😃

Klarinett er tréblásturshljóðfæri búið til úr svörtum viði og fallegur mjúkur hljómur þess svipar til söngraddarinnar. Það er sérstakt því það getur spilað mjög djúpar nótur en líka mjög háar nótur og styrkleikasvið þess er afar vítt, frá mjög sterkum tónum yfir í mjög veika tóna.Klarniettið er gamalt hljóðfæri en vinsældir þess jukust mjög fyrir um 200 árum þegar tónskáldið Wolfgang Amadeus Mozart tók ástfóstri við hljóðfærið og samdi fyrir það mörg falleg lög. Klarinett er notað í sinfóníuhljómsveitum, spilar t.d. köttinn í Pétri og úlfinum eftir Prokofiev, og eins er það mikið notað í klezmer- og jazz tónlist.Til eru um 12 mismunandi tegundir af mismunandi stórum klarinettum. Það klarniett sem flestir byrja að læra á heitir B – klarinett. Nemendur þurfa að vera orðnir um átta til níu ára til að læra á það og það hjálpar að hafa lært dálítið á blokkflautu fyrst. Til eru minni og léttari klarinettur, svokallaðar C klarinettur, sem gefa möguleika á að byrja nokkru fyrr, eða um sjö ára aldur.

Fleiri fréttir

Jólatónleikar og síðustu kennsludagar

Jólatónleikar skólans verða laugardaginn 13. desember kl. 11 í Bústaðakirkju. Á þeim tónleikum spila ekki allir nemendur skólans en auðvitað eru öll velkomin að koma og hlusta. Húsið opnar fyrir hlustendur kl.10:45. Síðasti kennsludagur forskóla I er mið. 10. des og

Lesa meira

Haustfrí

Minnum á að haustfrí er í Tónmenntaskólanum frá föst. 24. okt til föst. 31. okt (báðir dagar meðtaldir) og því engin kennsla þá daga og skrifstofan lokuð.

Lesa meira

Strengjamótið á Akranesi

Þessi flotti hópur fór frá skólanum á strengjamótið á Akranesi sem haldið var um síðustu helgi. Mótið var frábærlega skipulagt og óskum við aðstandendum innilega til hamingju með það. Hlökkum til næsta móts 😁

Lesa meira

Kennsla hefst

Hljóðfærakennsla og kennsla í hljóðfæraforskólum hefst fimmtudaginn 28. ágúst. Kennsla í Almennum forskóla og tónfræði hefst mánudaginn 8. september. Skrifstofa skólans er opin mán. – fim. kl. 13 – 16.

Lesa meira

Sumarleyfi

Tónmenntaskólinn er nú kominn í sumarleyfi og skrifstofan lokuð til 18. ágúst. Þið getið hins vegar alltaf sent okkur tölvupóst því við lítum á hann við og við 😉 Fyrsti kennsludagur í haust er fimmtudagur 28. ágúst. Hafið það gott

Lesa meira

Páskaleyfi

Páskaleyfi er í Tónmenntaskólanum dagana 14. – 21. apríl að báðum dögum meðtöldum. Vinsamlega athugið að skrifstofa skólans opnar ekki fyrr en föstudaginn 25. apríl þó kennsla hefjist þriðjudaginn 22. apríl.

Lesa meira

Vorhátíð – opið hús

Tónmenntaskólinn verður með opið hús laugardaginn 5. apríl nk. milli kl.13 og 15. Gestir og gangandi eru boðnir velkomnir inn í hið sögufræga hús Tónmenntaskólans „Franska spítalann“ við Lindargötu 51, til að kynna sér starfsemi skólans, en þar stunda rúmlega

Lesa meira

Add Your Heading Text Here