Tónmenntaskólinn er nú kominn í sumarleyfi og skrifstofan lokuð til 18. ágúst. Þið getið hins vegar alltaf sent okkur tölvupóst því við lítum á hann við og við 😉
Fyrsti kennsludagur í haust er fimmtudagur 28. ágúst.
Hafið það gott í sumar.

Skrifstofa skólans er lokuð í sumar til 19. ágúst. Örvæntið hins vegar ekki því við kíkjum af og til á póstinn þó ekki komi svör strax 😉 Fyrsti kennsludagur hljóðfærakennslu verður fimmtudaginn 27. ágúst. Forskólar og tónfræði hefjast mánudaginn 7. september.

Vortónleikar og útskrift Tónmenntaskólans verða í Iðnó miðvikudaginn 27. maí kl. 18. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Laugardaginn 18. apríl verðum við með stórhátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Nótan- uppskeruhátíð tónlistarskólanna fer fram, kl.11 – 15:30. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og öll velkomin. Það má segja að Vorhátíðin okkar færist þetta árið þangað niður eftir því skólinn tekur þátt

Páskaleyfi er í Tónmenntaskólanum dagana 30. mars – 6. apríl að báðum dögum meðtöldum. Skólinn opnar aftur þriðjudaginn 7. apríl kl.13. Gleðilega páska!

Hér er búið að vera mikið fjör í vikunni þar sem um 240 leikskólabörn úr 11 leikskólum borgarinnar hafa komið í heimsókn og æft með hljómsveit Tónmenntaskólans fyrir stóra daginn 21. apríl þegar við tökum þátt í „Söngvavori 2026 –

Vetrarleyfi er í Tónmenntaskólanum 16. – 20. febrúar (báðir dagar meðtaldir). Sjáums hress og kát mánudaginn 23. feb.

Jólatónleikar skólans verða laugardaginn 13. desember kl. 11 í Bústaðakirkju. Á þeim tónleikum spila ekki allir nemendur skólans en auðvitað eru öll velkomin að koma og hlusta. Húsið opnar fyrir hlustendur kl.10:45. Síðasti kennsludagur forskóla I er mið. 10. des og
Skrifstofa skólans opnar ekki fyrr en kl.14 í dag, þriðjudag 18/11. Á morgun verður opið á venjulegum tíma kl.13-16.

Minnum á að haustfrí er í Tónmenntaskólanum frá föst. 24. okt til föst. 31. okt (báðir dagar meðtaldir) og því engin kennsla þá daga og skrifstofan lokuð.

Þessi flotti hópur fór frá skólanum á strengjamótið á Akranesi sem haldið var um síðustu helgi. Mótið var frábærlega skipulagt og óskum við aðstandendum innilega til hamingju með það. Hlökkum til næsta móts 😁