Stundaskrár

Kæru foreldrar / forráðamenn,
Vinsamlegast sendið okkur stundaskrár barna ykkar um leið og þær berast frá grunnskólunum á tms@tonmenntaskoli.is með nafni barns í titli.

Stundaskrárnar sjálfar þurfa líka að vera vel merktar með nafni barns. Athugið að ef taka á tillit til annarra tómstunda þurfa upplýsingum um þær að vera vel merktar inn á skrána. Skólinn getur ekki breytt sinni stundaskrá vegna tíma sem kunna að koma inn síðar eða eftir 1. september.

Hljóðfærakennarar munu verða í sambandi við heimilin um helgina þar sem hljóðfærakennsla og kennsla í fiðlu og píanóforskóla hefst mán. 26.ágúst.

Foreldrar nemenda í Forskóla I og Forskóla II (ekki fiðlu/píanó) athugið að tímar hefjast ekki fyrr en 9.september svo haft verður samband örlítið seinna við þá.

Hlökkum til að sjá ykkur .

Fleiri fréttir

Jólatónleikar og síðustu kennsludagar

Jólatónleikar skólans verða laugardaginn 13. desember kl. 11 í Bústaðakirkju. Á þeim tónleikum spila ekki allir nemendur skólans en auðvitað eru öll velkomin að koma og hlusta. Húsið opnar fyrir hlustendur kl.10:45. Síðasti kennsludagur forskóla I er mið. 10. des og

Lesa meira

Haustfrí

Minnum á að haustfrí er í Tónmenntaskólanum frá föst. 24. okt til föst. 31. okt (báðir dagar meðtaldir) og því engin kennsla þá daga og skrifstofan lokuð.

Lesa meira

Strengjamótið á Akranesi

Þessi flotti hópur fór frá skólanum á strengjamótið á Akranesi sem haldið var um síðustu helgi. Mótið var frábærlega skipulagt og óskum við aðstandendum innilega til hamingju með það. Hlökkum til næsta móts 😁

Lesa meira

Kennsla hefst

Hljóðfærakennsla og kennsla í hljóðfæraforskólum hefst fimmtudaginn 28. ágúst. Kennsla í Almennum forskóla og tónfræði hefst mánudaginn 8. september. Skrifstofa skólans er opin mán. – fim. kl. 13 – 16.

Lesa meira

Sumarleyfi

Tónmenntaskólinn er nú kominn í sumarleyfi og skrifstofan lokuð til 18. ágúst. Þið getið hins vegar alltaf sent okkur tölvupóst því við lítum á hann við og við 😉 Fyrsti kennsludagur í haust er fimmtudagur 28. ágúst. Hafið það gott

Lesa meira

Páskaleyfi

Páskaleyfi er í Tónmenntaskólanum dagana 14. – 21. apríl að báðum dögum meðtöldum. Vinsamlega athugið að skrifstofa skólans opnar ekki fyrr en föstudaginn 25. apríl þó kennsla hefjist þriðjudaginn 22. apríl.

Lesa meira

Vorhátíð – opið hús

Tónmenntaskólinn verður með opið hús laugardaginn 5. apríl nk. milli kl.13 og 15. Gestir og gangandi eru boðnir velkomnir inn í hið sögufræga hús Tónmenntaskólans „Franska spítalann“ við Lindargötu 51, til að kynna sér starfsemi skólans, en þar stunda rúmlega

Lesa meira

Add Your Heading Text Here