Laugardaginn 18. apríl verðum við með stórhátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Nótan- uppskeruhátíð tónlistarskólanna fer fram, kl.11 – 15:30. Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og öll velkomin.
Það má segja að Vorhátíðin okkar færist þetta árið þangað niður eftir því skólinn tekur þátt og verður með sinn bás þar sem hljóðfærakynningar fara fram, listasmiðja og almenn kynning á skólanum.
Þarna verða að sjálfsögðu líka tónleikar kl.11, 13 og 14:30.
Okkar fulltrúar á tónleikunum eru þau Starkaður Máni Sveinsson sem leikur á píanó, Jón Tómas Kruk sem leikur á Saxófón og Matylda Anna Chodkiewicz sem leikur á klarinett. Þau spila öll kl.11. Svo á tónleikunum kl.14:30 kemur hljómsveitin Espólín fram en þau eru hluti af Miðstöðinni sem er sameiginleg rythmadeild Tónmenntaskólans og Nýja tónlistarskólans.






