Kennsla í desember

Eins og flestum er kunnugt þá verður núverandi samkomubann framlengt til 9. desember. Hvað gerist eftir það er erfitt um að spá! Við reynum nú samt að skipuleggja okkar jólastarf hér í skólanum og eins og er þá er unnið eftir þessu skipulagi:
4. des Síðustu tónfræðitímar fyrir jól – hefjast aftur þriðjudaginn 5. janúar

7. des Jólatímar hjá Forskóla I og II – svo jólafrí – kennsla í forskóla hefst aftur 6. janúar

11.-15. des Jólasamspilstímar Hver kennari heldur jólasamspilstíma með sínum nemendum, án foreldra uppi í sal eða úti í gamla bakhúsi.

12. des Jólatónleikar í Bústaðakirkju kl.14 Athugið eins og ástandið er í dag og í samræmi við sóttvarnarreglur þá munu aðeins þeir nemendur sem koma fram á jólatónleikunum vera einu leyfilegu áheyrendurnir og því miður væntanlega engir foreldrar með. Tónleikunum mun annaðhvort verða streymt til foreldra eða þeir teknir upp og sendir út.
Jólafrí er í Tónmenntaskólanum dagana 16. des – 4 janúar að báðum dögum meðtöldum.
Við erum byrjuð að skreyta skólann fyrir jólin og allir að komast í jólaskap. Við höldum áfram að undirbúa og spila jólalög og vonum auðvitað að einhverjar rýmkanir verði á samkomubanni eftir 9. des.

Fleiri fréttir

Nótan 2024

Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskólanna, er haldin á morgun, laugardaginn 13. apríl í Salnum, Kópavogi. Þar á Tónmenntaskóli Reykjavíkur tvo glæsilega fulltrúa, þau Ólaf Þórarinsson, fagottleikara sem spilar á tónleikunum kl.11 og Matyldu Önnu Chodkiewicz, klarinettuleikara sem spilar á tónleikunum kl.13. Meðleikari

Lesa meira

Innritun hafin!

Innritun vegna næsta skólaárs 2024-2025 er nú hafin. Sótt er um hér á heimasíðunni Núverandi nemendur þurfa ekki að sækja um aftur heldur aðeins greiða staðfestingargjald í heimabanka.

Lesa meira

Páskaleyfi

Páskaleyfi er í Tónmenntaskólanum dagana 25. mars – 1. apríl að báðum dögum meðtöldum. Gleðilega páska 🐣

Lesa meira

Vetrarleyfi 14. – 20. feb

Minnum á að vetrarleyfi er í Tónmenntaskólanum 14. – 20. febrúar að báðum dögum meðtöldum. Á það skal minnst að þegar haust- og vetrarleyfi eru ákveðin er farið eftir útsendu dagatali frá Skóla- og frístundasviði borgarinnar. Borgin mælist til þess að skólar

Lesa meira

Upptakturinn 2024

Vakin er athygli á Upptaktinum, www.harpa.is/upptakturinn, tónsköpunarverðlaunum barna og ungmenna, en með honum er ungu fólki í 5. – 10. bekk grunnskóla, gefið tækifæri til að senda inn tónsmíð eða drög að henni og vinna markvisst úr hugmyndum sínum með

Lesa meira

Jólaleyfi

Jólaleyfi verður í Tónmenntaskólanum 16. desember – 2. janúar (báðir dagar meðtaldir). Við minnum nemendur á að fylla út val sitt fyrir þemavikuna sem verður í janúar. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.

Lesa meira

Jólatónleikar og síðustu kennsludagar fyrir jól

Jólatónleikar skólans verða laugardaginn 9. desember kl. 14 í Bústaðakirkju. Á þeim tónleikum spila ekki allir nemendur skólans en auðvitað eru öll velkomin að koma og hlusta. Húsið opnar fyrir hlustendur kl.13:40. Síðustu kennsludaga fyrir jól verða helgaðir allskyns jólasamspilum bæði

Lesa meira

Skiptidagar

Dagana 6. – 10. nóvember verða svokallaðir skiptidagar. Þá skiptast kennarar á nemendum í eina til tvær klst. Það eru því ekki allir sem fá „óvænt“ nýjan kennara þá daga, en einhverjir.  Þetta er gert til að lífga upp á hversdaginn

Lesa meira

Haustfrí

Haustfrí verður í Tónmenntaskólanum 25. – 31. okt að báðum dögum meðtöldum.

Lesa meira

Add Your Heading Text Here