Eins og flestum er kunnugt þá verður núverandi samkomubann framlengt til 9. desember. Hvað gerist eftir það er erfitt um að spá! Við reynum nú samt að skipuleggja okkar jólastarf hér í skólanum og eins og er þá er unnið eftir þessu skipulagi:
4. des Síðustu tónfræðitímar fyrir jól – hefjast aftur þriðjudaginn 5. janúar
7. des Jólatímar hjá Forskóla I og II – svo jólafrí – kennsla í forskóla hefst aftur 6. janúar
11.-15. des Jólasamspilstímar Hver kennari heldur jólasamspilstíma með sínum nemendum, án foreldra uppi í sal eða úti í gamla bakhúsi.
12. des Jólatónleikar í Bústaðakirkju kl.14 Athugið eins og ástandið er í dag og í samræmi við sóttvarnarreglur þá munu aðeins þeir nemendur sem koma fram á jólatónleikunum vera einu leyfilegu áheyrendurnir og því miður væntanlega engir foreldrar með. Tónleikunum mun annaðhvort verða streymt til foreldra eða þeir teknir upp og sendir út.
Jólafrí er í Tónmenntaskólanum dagana 16. des – 4 janúar að báðum dögum meðtöldum.
Við erum byrjuð að skreyta skólann fyrir jólin og allir að komast í jólaskap. Við höldum áfram að undirbúa og spila jólalög og vonum auðvitað að einhverjar rýmkanir verði á samkomubanni eftir 9. des.