Innritun nýrra nemenda fyrir skólaárið 2018 – 2019 hefst mánudaginn 12. mars kl. 9
Innritaðir eru 6-7 ára nemendur í forskóla, 5-8 ára nemendur í fiðluforskóla og 8-10 ára nemendur í hljóðfæranám (án undangengins forskóla).
Í boði er Forskóli I, Forskóli II, Fiðluforskóli og kennsla á eftirfarandi hljóðfæri:
- Strengjahljóðfæri: fiðla, selló, gítar
- Píanó
- Blásturshljóðfæri: þverflauta, saxófónn, klarinett, fagott
Skrifstofa skólans á Lindargötu 51 er opin frá kl. 13 – 16 virka daga, sími 562-8477.
Sótt er um á Rafrænni Reykjavík, www.rafraen.reykjavik.is og þarf Tónmenntaskólinn að vera fyrsta val.