Gleðilegt ár!
Nýja árið hefst með látum þar sem covid fárið slær ekkert af. Við gefum heldur ekkert eftir og Tónmenntaskólinn hefst aftur samkvæmt stundaskrá á morgun, miðvikudag 5. janúar.
Grímuskylda er fyrir alla fædda 2006 eða fyrr. Foreldrar eru beðnir um að koma ekki inn í skólahúsin nema með yngstu forskólabörnunum og aðeins ef nauðsyn ber til.
Brýnum fyrir nemendum að þvo hendur áður en þeir koma inn í tíma og alls ekki koma í skólann ef einhverra kvef einkenna er vart heldur fara þá beint í PCR próf. Vinsamlega tilkynnið öll forföll til skrifstofu skólans.
Vissulega er viðbúið að skólastarf muni eitthvað raskast en kennarar reyna eftir bestu getu að halda kennsluáætlunum og kenna alla þá tíma sem hægt er. Vonandi varir þetta ástand ekki of lengi og hlökkum til að sjá nemendur hér í skólanum.