Á vorin fá nemendur vitnisburð um árangur vetrarins á þar til gerðu eyðublaði í formi talna (stigspróf), orða (ágætt, mjög gott, gott, o.s.frv.) og skriflegra umsagna. Árangur á stigsprófi segir aðeins óbeint til um atriði eins og ástundun og árangur. Þessi atriði eru því sérstaklega metin sem hluti af vetrareinkunn. Vormat ásamt öðrum upplýsingum er sent í pósti til aðstandenda nemenda um mánaðamótin maí / júní. (Sjá nánar í viðauka bls. 49.)
Skólaslit eru í lok maí að lokinni kennslu, prófum og starfsdögum kennara. Skólaslitin eru einungis ætluð nemendum sem útskrifast og aðstandendum þeirra. Þetta á við nemendur sem útskrifast úr 6. bekk og úr framhaldsdeildum, þ.e. 7. og 8. bekk.
Hægt er að sækja prentvæna útgáfu af námskráinni hér (1.9 mb).
Til að opna námskráina og viðauka þarf að nota Adobe Reader.