Eins og áður segir er Tónmenntaskóli Reykjavíkur einkum ætlaður nemendum á grunnskólaaldri. Nemendafjöldi var lengi vel frá 450 - 500 á ári. Hin síðari ár hefur skólinn þó séð sig knúinn til að minnka nemendafjöldann mjög mikið vegna einsetningar grunnskólans. Er nú svo komið að nemendafjöldi í skólanum er 230 – 250. Alltaf hafa einhverjir eldri nemendur sem koma annars staðar frá verið teknir beint inn í skólann án þess að fara fyrst í forskólann. Þeir fara þá beint inn í þá bekki sem henta þeim hvað aldur varðar og fá stundum aukakennslu í tónfræði til að standa jafnt að vígi og nemendur sem hafa farið í gegnum kerfi Tónmenntaskólans frá upphafi.
Hlutfall nemenda sem útskrifast hafa yfir 10 ára tímabil (1993 - 2003):
úr 6. bekk (almennum deildum skólans): 15%
úr 7. bekk (fyrri bekk framhaldsdeildar): 20%
úr 8. bekk (síðari bekk framhaldsdeildar): 100%
Margir nemendur sem útskrifast úr 7. og 8. bekk halda áfram námi, flestir í Tónlistarskólanum í Reykjavík en einnig í öðrum skólum. Margir fyrrverandi nemendur skólans eru atvinnu-hljóðfæraleikarar í Sinfóníuhljómsveit Íslands eða þekktir tónlistarmenn.
Skipting nemenda eftir kynferði yfir 10 ára tímabil (1993 - 2003):
Stúlkur 59% Piltar 41%
Ef litið er á skiptingu kynja milli einstakra hljóðfæraflokka eru niðurstöður eftirfarandi miðað við tímabilið 1993 - 2003:
| Stúlkur | Piltar | |
| Píanó | 69% | 31% |
| Strengjahljóðfæri | 64% | 36% |
| Tréblásturshljóoðfæri | 53% | 47% |
| Málmblásturshljóðfæri | 10% | 90% |
| Slagverkshljóðfæri | 0% | 100% |
Hægt er að sækja prentvæna útgáfu af námskráinni hér (1.9 mb).
Til að opna námskráina og viðauka þarf að nota Adobe Reader.