Forskóli

Fornám er samþætt byrjendanám í tónfræðagreinum, sniðið að aldri og þroska barna (aðalnámskrá bls. 17).

Börn geta innritast í forskóla sex eða sjö ára að aldri.  Börn sem innritast sex ára eru tvö ár í forskóla en sjö ára börn einn vetur.  Kennt er í hópum og eru sjö til níu nemendur í hverjum hópi.  Hver hópur fær tvær kennslustundir á viku.

Í forskólanum fá nemendur alhliða tónlistarþjálfun með því að taka þátt í söng, blokkflautuleik (forskóli II), hreyfi- og hrynþjálfun og markvissri hlustun.  Frumatriði í tónfræði eru kennd í forskóla II.  Ýmiss konar skapandi starf er snar þáttur í náminu.  Forskólanámið byggir að verulegu leyti á tónlistarupplifun nemenda, sérstaklega í Forskóla I.





© Copyright 2005 | Tónmenntaskóli Reykjavíkur
Lindargata 51, 101 Reykjavík | Sími 562-8477 | Fax 562-9477 | tms@tonmenntaskoli.is