Sérstakur fiðluforskóli er starfræktur fyrir fimm til sjö ára börn með það að markmiði að gefa börnum á þessum aldri, sem eru enn ekki læs á nótur, tækifæri til að kynnast fiðlunni, læra einföldustu lög eftir eyranu og grundvallartækni á hljóðfærið.
Kennt er tvisvar í viku; einkatími í um 30 mínútur og hóptími (tveir nemendur saman) þar sem hvert barn fær um 15 mínútna kennslu.
Þeir nemendur sem eru að hefja þriðja árið í fiðluforskóla (sjö ára) fá tvo 30 mínútna einkatíma í viku og geta þar að auki stundað hóptíma í forskóla II (2 x 50 mín. á viku) án aukakostnaðar.
Ef nemandi kýs að hætta í fiðluforskólanum sex eða sjö ára gamall getur hann farið í venjulegan forskóla.
Þar sem nemendur í fiðluforskóla eru mjög ungir að árum má segja að nám þeirra standi eða falli með stuðningi og þátttöku foreldra. Því eru gerðar kröfur um að annað foreldrið mæti í tíma með barninu og að unnið sé með því heima.
Hægt er að sækja prentvæna útgáfu af námskráinni hér (1.9 mb).
Til að opna námskráina og viðauka þarf að nota Adobe Reader.