Strengjasveit Tónmenntaskólans æfir einu sinni í viku í 1 klst. á sal skólans (stofu 1). Sveitin er ætluð yngstu nemendunum, sem enn hafa ekki lokið grunnprófi. Stjórnandi hennar er Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir.
Tónmenntaskólinn hefur í mörg ár verið í samstarfi við Tónskóla Sigursveins með hljómsveitir. Þeir nemendur Tónmenntaskólans sem lokið hafa grunnprófi taka þátt í hljómsveitastarfi þar í hljómsveit 3, stjórnandi Kristján Matthíasson og í Strengjasveit TSDK, stjórnandi Helga Þórarinsdóttir
Þátttaka í hljómsveitum skólans er skylda fyrir alla strengjanemendur og telst mikilvægur þáttur í náminu.