Fiðluforskóli

Sérstakur fiðluforskóli er starfræktur fyrir 5 til 7 ára börn með það að markmiði að gefa börnum á þessum aldri, sem eru enn ekki læs á nótur, tækifæri til að kynnast fiðlunni, læra einföldustu lög eftir eyranu og grundvallartækni á hljóðfærið, sem og grundvallaratriði í tónfræði í gegnum leik og söng.

Kennt er tvisvar í viku;  einkatími í 30 mínútur og 30-45 mínútna hóptími (fer eftir nemendafjölda).

Þeir nemendur sem eru að hefja þriðja árið í fiðluforskóla (sjö ára) geta þar að auki stundað hóptíma í forskóla II (2 x 50 mín. á viku) og tekið þátt í hljómsveitastarfi án aukakostnaðar.

Þar sem nemendur í fiðluforskóla eru mjög ungir að árum má segja að nám þeirra standi eða falli með stuðningi og þátttöku foreldra.  Því eru gerðar kröfur um að annað foreldrið mæti í einkatíma með barninu og að unnið sé með því heima.

Kennslustundir á viku
2
Lengd kennslustunda
30/30-45
Fjöldi nemenda í hóp
2-6

Add Your Heading Text Here